Print Options:








Kjúklingabaunir í Tikka Masala sósu

Magn1 skammtur

Einfaldur kjúklingabaunaréttur úr smiðju Hildar Ómars. "Mögulega sá einfaldasti. Ef veganúar er ekki rétti tíminn til að elda úr baunum þá veit ég ekki hvað." segir Hildur

Kjúklingabaunir
 1 stk geiralaus hvítlaukur
 1 stk gulur laukur
 100 g tómatpúrra
 3 stk kjúklingabaunir í dós
 2 msk Tikka Masala Spice Paste frá Patak´s
 1 dl vatn
 3 dl Oatly jógúrt, hrein
 Olía til steikingar
 Salta eftir smekk
Vegan raita / jógúrtsósa
 2 dl Oatly jógúrt, hrein
 2 stk hvítlauksrif
 ½ stk Safi úr lífrænni sítrónu (þær eru minni)
 Smá salt
1

Steikið lauk, hvítlauk á pönnu í smá olíu þar til hann mýkist og setjið svo Tikka Masala Paste, tómatpúrru og vatn út á pönnuna og hrærið léttilega þar til áferðin er orðin jöfn.

2

Skolið baunirnar og bætið þeim útá ásamt jógúrtinni. Leyfið þessu að malla í smá stund, smakkið til og saltið eftir smekk.

3

Útbúið raituna/jógúrtsósuna með því að blanda saman jógúrtinni, rifnum hvítlauksrifjum, safa úr sítrónu og smá salti.

4

Berið fram með hýðishrísgrjónum, kóríander og vegan raitu.