fbpx

Kjúklinga- og beikonlasagna

Þetta lasagna er hrikalega gott!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 ólífuolía
 10 sneiðar beikon,
 1 laukur, saxaður
 3 hvítlauksrif, pressuð
 500 g Rose Poultry kjúklingabringur, skornar í munnbita
 1 rauð paprika, söxuð
 1 gul paprika, söxuð
 2 msk tómatmauk (tomat paste)
 400 g saxaðir tómatar í dós
 100 ml kjúklingasoð
 1 tsk oregano
 salt og pipar
 lasagnaplötur
 1 lítið zucchini, skorið í sneiðar (má sleppa)
 300 g mozzarella, rifinn
Bechamel sósa
 50 g smjör
 2 msk hveiti
 250 ml mjólk
 salt og pipar
 hnífsoddur múskat
 50 g parmesan, rifinn

Leiðbeiningar

1

Eldið beikonið þar til það er orðið stökkt. Klippið það niður í litla bita og geymið í skál. Látið laukinn á pönnu og steikið þar til hann er orðinn glær. Bætið þá hvítlauknum út og steikið við vægan hita í 1 mínútu. Bætið síðan kjúklingnum saman við, aukið hitann og brúnið kjúklinginn. Látið þá paprikuna út í og hrærið í aðrar tvær mínútur.

2

Bætið því næst tómatmaukinu og látið það þekja grænmetið og kjúklinginn. Setjið að lokum tómata, kjúklingasoð og oregano saman við og saltið og piprið að eigin smekk. Leyfið þessu að malla í 10-15 mínútur.

3

Gerið því næst sósuna með því að setja smjörið í pott og bræða við meðalhita. Þegar það er byrjað að sjóða lítillega bætið þá hveitinu saman við og hrærið vel saman við smjörið yfir hita í 1-2 mínútur. Bætið því næst mjólkinni smátt og smátt saman við og hrærið stöðugt í um 3-4 mínútur. Þegar sósan hefur náð æskilegri þykkt (bætið við smá mjólk ef hún er of þykk) bætið þá múskati og parmesanosti saman við.

4

Setjið beikonið saman við kjúklinginn.

5

Ausið nú einn þriðja af kjúklingnum í ofnfast mót. Raðið zucchini ofaná það og látið síðan einn þriðja af sósunni yfir það og endið með lasagnaplötunum. Endurtakið aftur (kjúklingur,zucchini, sósa, lasagnaplötur) og einu sinni enn, endið þið á sósunni og stráið síðan mozzarella yfir allt.

6

Setjið í 200°c heitan ofn og eldið í 30 mínútur.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
Crunch WrapHér er á ferðinni stökk en sama tíma mjúk vefja sem er tilvalin fyrir Taco þriðjudaga.