fbpx

Jógúrtbitar með hindberjum og jarðarberjum

Fullkomið millimál eða sætt nammi sem geymist í frysti! Það er eitthvað við samsetningu af grískri jógúrt, ferskum berjum og smá súkkulaði sem gerir mann alveg háðan! Þessir jógúrtbitar eru ekki bara ótrúlega girnilegir heldur líka næringarríkir – fullkomið til að grípa í þegar sykurpúkinn bankar upp á!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 2 dl grískt jógúrt
 125 g Driscoll’s hindber (stappa 8 stk, rest skorin í sneiðar)
 8 stk Driscoll’s jarðraber, smátt skorin
 1-2 msk hunang (eftir smekk)
 1 msk chia fræ (eða 2 msk chia fræ í vatni/kókosmjólk)
 50 g dökkt súkkulaði, brætt
 1 msk hnetusmjör

Leiðbeiningar

1

Byrjið á því að stappa 8 hindber og blandið saman við gríska jógúrt, hunang, og chia fræ í skál. Látið blönduna standa í nokkrar mínútur á meðan chia fræin þykkna smá.

2

Hellið blöndunni í flatan bakka eða eldfast mót klætt bökunarpappír.

3

Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni (passið að hræra vel!).

4

Dreifið súkkulaðinu og hnetusmjörinu yfir jógúrtblönduna með skeið.

5

Smátt skerið jarðaber og restina ef hindberjunum. Dreifið berjunum jafnt yfir jógúrtblönduna.Frystið í að minnsta kosti 2 klst eða þar til bitarnir eru orðnir harðir.

6

Þegar þeir eru tilbúnir, skerið í litla bita og njótið! Best er að geyma bitana í loftþéttu íláti í frystinum og taka út nokkrum mínútum áður en þeir eru borðaðir.

Uppskrift eftir Hildi Rut

DeilaTístaVista