Print Options:








Jalapenó osta fylltir grillaðir bbq hamborgarar

Magn1 skammtur

Jalapenó osta fylltir grillaðir BBQ hamborgarar eru ótrúlega djúsí og fyrst og fremst hrikalega bragðgóðir.

 U.þ.b. 500 g nautahakk
 1 eggjarauða
 BBQ kryddblanda
 Hamborgarabrauð
 100 g Philadelphia rjómaostur
 100 g rifinn mozzarella ostur
 ½ dl niðursoðinn jalapenó, skorinn smátt niður
 Heinz BBQ sósa Sweet Barbecue
 Grænmeti eftir smekk (ég notaði salat, buff tómata og rauða papriku)
 Majónes frá Heinz
1

Setjið nautahakkið í skál, setjið eina eggjarauðu út í ásamt u.þ.b. 1 tsk af bbq kryddblöndunni, hnoðið vel saman með höndunum þar til það er orðið þétt og hægt að móta það vel án þess að það detti í sundur. Skiptið hakkinu í 8 hluta (mér finnst best að vigta allt hakkið í einu, deila þyngdinni í 8 hluta og vigta svo rétt magn í hvern hluta, þannig verða hamborgaranir allir jafn stórir).

2

Fletið hvern hluta af hakkinu annað hvort með hamborgarapressu eða með höndunum þannig að þeir eru u.þ.b. 11-12 cm í þvermál (a.t.h. hvert hamborgarakjöt verður mjög þunnt).

3

Blandið saman í skál philadelphia, rifnum mosarella og jalapenó. Takið u.þ.b. 1 msk af ostablöndunni og setjið í miðjuna á 4 hamborgarakjötum. Takið hina sem eru ekki með osti á og leggið ofan á þá sem eru með osti, passið að kjötið rifni ekki og klessið örlítið saman meðfram hliðunum.

4

Grillið hamborgarakjötið á grilli þar til þeir eru eldaðir í gegn, penslið með BBQ sósu seinustu mínúturnar sem þeir eru á grillinu og leyfið sósunni aðeins að taka sig.

5

Setjið hamborgarabrauðin á grillið og grillið í u.þ.b. 1 mín á hvorri hlið (fylgist mjög vel með svo þau brenni ekki).

6

Smyrjið hamborgarabrauðin með majónesi, setjið grænmetið á ásamt kjötinu, berið fram með meiri bbq sósu og frönskum.