Hér kemur dásamlegur kjúklingaréttur sem var tilbúinn á 20 mínútum svo það er ekki lengur afsökun fyrir því að prófa ekki að skella í indverskt!

Uppskrift
Hráefni
1 laukur
3 hvítlauksrif
2 tsk rifið engifer
700 g Rose Poultry úrbeinuð kjúklingalæri
4 msk Hunt‘s tómatmauk (paste)
1 msk Garam Masala
1 tsk paprikuduft
1 tsk cumin duft
350 ml rjómi
salt og pipar
Smjör og ólífuolía til steikingar
Meðlæti
Tilda hrísgrjón (soðin)
Patak‘s naan brauð með smjöri
Leiðbeiningar
1
Skerið kjúklinginn niður og leggið til hliðar.
2
Saxið laukinn smátt og steikið við vægan hita upp úr olíu og smjöri, kryddið með salti og pipar.
3
Rífið engifer og hvítlauk saman við í lokin og steikið áfram stutta stund.
4
Næst má kjúklingurinn fara á pönnuna og hér má bæta við smá olíu og krydda aðeins með salti og pipar.
5
Næst má bæta tómatmauki og öðrum kryddum saman við og steikja áfram.
6
Hellið þá rjómanum á pönnuna og leyfið að malla í um 10 mínútur á meðan þið sjóðið grjón og hitið naan brauð.
7
Gott er að rífa smá kóríander yfir í lokin en það er þó ekki nauðsynlegt.
MatreiðslaKjúklingaréttirTegundIndverskt
Hráefni
1 laukur
3 hvítlauksrif
2 tsk rifið engifer
700 g Rose Poultry úrbeinuð kjúklingalæri
4 msk Hunt‘s tómatmauk (paste)
1 msk Garam Masala
1 tsk paprikuduft
1 tsk cumin duft
350 ml rjómi
salt og pipar
Smjör og ólífuolía til steikingar
Meðlæti
Tilda hrísgrjón (soðin)
Patak‘s naan brauð með smjöri