Print Options:








Hvítlauks- og parmesan kjúklingur með litríku rótargrænmeti

Magn1 skammtur

Rétturinn sem við eldum þegar við nennum ekki að elda.

 4 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
 1 msk steinselja
 1 msk þurrkað oregano
 1 tsk hvítlauksduft
 1 tsk paprikukrydd
 1/4 tsk chilíkrydd t.d. chilí explosion
 salt og pipar
 1 sítróna, safi og fínrifinn börkur
 ólífuolía t.d. extra virgin frá Filippo Berio
 1 poki gulrætur
 1-2 sætar kartöflur eða 1/2 ílangt grasker
 1 rauðlaukur
 1 brokkolí
 2 hvítlauksrif pressuð
 parmesanostur rifinn frá Parmareggio
1

Skerið kjúklinginn í bita og setjið í skál.

2

Blandið steinselju, oregano, hvítlauksdufti, papriku, chilíkryddi, salti og pipar saman í skál. Setjið helminginn af kryddblöndunni saman við kjúklinginn ásamt 2 msk af ólífuolíu og safa úr 1 sítrónu ásamt fínrifnum sítrónuberki. Blandið öllu vel saman og setjið kæli á meðan grænmetið er undirbúið.

3

Setjið smjörpappír á ofnplötu og skerið grænmetið gróflega niður og blandið öllu saman. Setjið 2-3 msk af ólífuolíu saman við grænmetið og afganginn af kryddinu. Látið í 200°c heitan ofn í um 20 mínútur.

4

Takið kjúklinginn úr ísskápnum og hellið vökvanum frá. Setjið saman við grænmetið og aftur inn í ofn í aðra 20 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður og grænmetið orðið mjúkt. Setjið á grill í nokkrar mínútur í lokin og brúnið örlítið.

5

Stráið rifnum parmesan yfir allt og berið fram.

Nutrition Facts

Serving Size 4