Er hægt að biðja um eitthvað meira en sveppi, beikon, hvítlauk, humar og svo allt löðrandi í parmesan rjómasoði ?
Uppskrift
Hráefni
Leiðbeiningar
Byrjið á að gera hvítlauksolíu úr olíunni, hvítlauknum, steinseljunni og saltinu sem eru fyrstu 4 hráefnin með því að hræra mörðum hvítlauknum saman við olíuna, saltið og steinseljuna og leggjið til hliðar
Bræðið næst 25 gr af smjöri á pönnu og steikið sveppina upp úr því og saltið létt yfir
Þegar sveppirnir eru orðnir dökkir klippið þá beikonið eða skerið og setjið út á pönnuna með sveppunum þar til það verður bleikt að lit
Takið svo af pönnuni og setjið til hliðar á disk
Setjið svo hvítlauksolíuna alla á pönnu við vægan hita og setjið humarinn út á og og chiliflögur yfir. Steikið við vægan hita svo hvítlaukurinn brúnist ekki né brenni, passið það vel !
Setjið svo 120 gr af rifnum parmesan út á ásamt hvítvínsvínegar og matreiðslurjómanum, saltið létt yfir og piprið
Setjið svo beikonsveppina út á og leyfið að malla í eins og fimm mínútur eða á meðan pastað er soðið í potti
Þegar þið sjóðið pastað saltið þá vatnið það vel að það verður nánast eins og sjóvatn en þannig lærði ég að ætti að sjóða pasta
Takið svo pastað að lokum og sigtið vatnið frá og hellið humar/beikon blöndunni ásamt öllu soðinu yfir og sáldrið vel af fersku timian eða steinselju yfir og ristaðar furuhnetur
Berið fram með fersku salati, góðu snittubrauði og enn meira parmesan til að sáldra yfir
Þetta er ekki svona hefðbundið ostapasta þar sem sósan á að vera þykk og rjómakennd heldur verður sósan meira eins og gott soð sem umlykur svo allt pastað með dásamlega hvítlauksbragðinu. Það sem má alls ekki gleyma í góðum pastarétt eru ferskar kryddjurtir eins og steinselja og tímian sem fer bæði afar vel með fiski og hvítlauk.