Print Options:








Hörpuskel Ceviche með kóriander og fennel

Magn1 skammtur

Hressandi hörpuskel með kóríander og fennel.

 3 stk stór hörpuskel (Sælkerafiskur)
 1/4 fennel - þunnt skorið
 1/2 blóðgreipaldin - eingöngu aldinkjötið
 1 límóna - safi og börkur
 1/3 sítróna - safi og börkur
 2 stilkar kóríander
 3 msk basilolía
 Salt
 1 lítill skarlottulaukur - þunnt skorinn
1

Byrjið á að hreinsa litla vöðvann frá hörpuskelinni. Skerið hörpuskelina eins þunnt og hægt er, best er að skera hana þegar hún er enn hálffrosin.

2

Raðið hörpuskelinni á disk og kryddið með sítrónu- og límónusafa.

3

Rífið sítrónu- og límónubörkinn yfir og dreifið olíunni vel um fiskinn.

4

Látið standa í um 10 mínútur áður en haldið er áfram svo fiskurinn byrji að taka sig.

5

Kryddið með salti og raðið greipaldinbitum, fennel og lauk á diskinn.

6

Skreytið með kóríander.