Print Options:








Hoisin núðlur með kjúklingi, chili og kóríander

Magn1 skammtur

Þessi núðluréttur er brjálæðislega einfaldur og fljótlegur og tilbúinn á núlleinni.

 1/2 bolli hoisin sósa frá Blue dragon
 2 msk olía
 1 msk hrísgrjónaedik frá Blue dragon
 2 msk sojasósa frá Blue dragon
 2 msk fínt saxað ferskt engifer
 2 gulrætur skornar í strimla
 500g kjúklingabringur frá Rose Poultry
 1 pk eggjanúðlur frá Blue dragon
 1 paprika skorin í litla strimla
 1/2 blaðlaukur skorinn í sneiðar
 1 rautt chili skorið í bita
1

Setjið saman hráefnið í marineringuna og skerið kjúklinginn í litla bita. Marinerið kjúklinginn í leginum í 30 mín.

2

Saxið grænmeti og léttsteikið, takið til hliðar

3

Setjið kjúklinginn ásamt marineringunni á heita pönnu og steikið þar til hann er gegnumsteiktur

4

Sjóðið núðlur samkvæmt leiðbeiningum, tekur ekki nema 4-5 mín.

5

Blandið saman kjúklingnum og grænmeti. Setijð núðlurnar í skál og hellið af pönnunni yfir. Berið fram með chili, ferskum kóríander ef hann er til og jafnvel nokkrum hnetum ef þið eigið.

Nutrition Facts

Serving Size 4-5