Print Options:








Hnallþóra áramótanna

Magn12 skammtar

Almáttugur krakkar ef þetta er ekki kakan sem þið ætlið að bjóða upp á á Gamlárskvöld þá veit ég ekki hvað! Hún er einföld og sjúklega góð! Það má baka botnana með fyrirvara til að spara tíma svo hér er nákvæmlega ekkert sem getur klikkað! Tobleronesósan gerir kökuna extra djúsí og góða og þessi samsetning er bara hreint út sagt guðdómleg.

Browniebotn
 100 g Toblerone
 100 g dökkt súkkulaði
 150 g smjör við stofuhita
 100 g sykur
 80 g púðursykur
 2 egg
 2 tsk vanilludropar
 0,50 tsk salt
 20 g Cadbury bökunarkakó
 70 g hveiti
Marengsbotn
 2 eggjahvítur
 150 g púðursykur
Tobleronesósa
 210 g Toblerone
 130 ml rjómi
Fylling og samsetning
 650 ml þeyttur rjómi
 100 g saxað Toblerone
 Stórt og lítið Toblerone til skrauts
 Kerti, stjörnur eða annað til skrauts
Browniebotn
1

Hitið ofninn í 175°C.

2

Setjið bökunarpappír í botninn á 22 cm smelluformi, spreyið síðan vel í hliðarnar og yfir pappírinn með PAM matarolíuspreyi.

3

Bræðið saman Toblerone og dökkt súkkulaði, geymið.

4

Þeytið smjör, sykur og púðursykur þar til létt og ljóst.

5

Bætið eggjum og vanilludropum saman við og skafið og þeytið vel á milli.

6

Bætið súkkulaðiblöndunni saman við og skafið niður á milli.

7

Að lokum fara þurrefnin (hveiti, bökunarkakó og salt) saman við, hrærið stutt saman og setjið síðan í bökunarformið.

8

Bakið í um 35 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi, kælið áður en þið setjið saman.

Marengsbotn
9

Hitið ofninn í 160°C.

10

Setjið bökunarpappír í botninn á 22 cm smelluformi og spreyið hliðarnar að innan með PAM matarolíuspreyi.

11

Þeytið saman eggjahvítur og púðursykur þar til topparnir halda sér.

12

Setjið í formið og sléttið úr eins og hægt er.

13

Bakið í 45 mínútur, slökkvið á ofninum og leyfið marengsinum að kólna með ofninum.

Tobleronesósa
14

Bræðið saman í potti á meðalháum hita þar til súkkulaðið er bráðið.

15

Hrærið vel í allan tímann og leyfið sósunni síðan að ná stofuhita áður en hún er notuð.

Fylling og samsetning
16

Blandið söxuðu Toblerone saman við þeytta rjómann og hefjist handa við samsetningu.

17

Setjið browniebotninn á kökudisk og tæplega helming Tobleronesósunnar yfir botninn.

18

Setjið þá um 2/3 af rjómanum yfir sósuna og marengsbotninn ofan á næst.

19

Þá má setja aftur tæplega helming af Tobleronesósu yfir marengsinn og síðan restina af rjómanum.

20

Fallegt er síðan að setja restina af Tobleronesósunni yfir rjómann, saxað Toblerone, heila Toblerone bita og það kökuskraut sem ykkur dettur í hug.

Nutrition Facts

Fyrir hvað marga, hvað mörg stykki 12