fbpx

Hjónabandssæla með döðlumauki

Þessi hjónabandssæla er hinsvegar aðeins öðruvísi en þessi hefðbundna en fer þó ekkert allt of langt frá henni. Döðlur passa fullkomlega með höfrunum og satt best að segja fattar enginn að þessi dásemd er vegan.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 250g döðlur frá Rapunzel
 1 tsk sítrónusafi
 240g vegan smjör mjúkt
 100g Cristallino sykur frá Rapunzel
 100g Rapadura sykur frá Rapunzel
 150g fínvalsað haframjöl frá Rapunzel
 280g hveiti eða lífrænt fínmalað spelt
 1 og 1/2 tsk matarsódi
 3 msk Oatly barista haframjólk

Leiðbeiningar

1

Hitið ofninn í 180°C

2

Setjið döðlurnar í lítinn pott og látið vatn fljóta yfir. látið suðu koma upp og sjóðið í 5 mín.

3

Setjið döðlurnar ásamt örlitlu af vatninu og sítrónusafanum í matvinnsluvél og maukið vel. Einnig er hægt að nota töfrasprota í verkið.

4

Setjið vegan smjör, sykur, hafra, hveiti, matarsóda og Oatly haframjólk í miðlungsstóra skál og hnoðið saman.

5

Takið 3/4 af deiginu og þjappið lauslega í form. Ég nota til jafns 20x20cm form á við 24cm hringlaga form.

6

Dreifið döðlumaukinu yfir botninn og klípið restinni af deiginu yfir.

7

Setjið inn í miðjan ofn og bakið í 40 - 45 mín eftir ofnum

8

Þessi smakkast ofurvel með þeyttum sojarjóma eða Oatly ís

Uppskrift frá GRGS.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir