Heit íssósa

Það er fátt betra og einfaldara en heimagerð, heit íssósa! Það má nota hvaða ís sem er með sósunni og gott er að leyfa henni aðeins að standa og þykkna áður en hún fer á ísinn. Ef þið viljið útbúa fljótlegan og ljúffengan eftirrétt þá er ís með heitri súkkulaðisósu málið!

 220 g Toblerone súkkulaði
 100 ml rjómi

1

Saxið Toblerone gróft niður og setjið í pott ásamt rjómanum.

2

Hitið saman við meðalhita þar til súkkulaðið hefur bráðnað, hrærið reglulega í sósunni á meðan.

3

Leyfið hitanum síðan aðeins að rjúka úr sósunni áður en hún er notuð á ís.

4

Gott er að strá söxuðu Toblerone yfir ísinn ásamt heitu sósunni.