Print Options:








Heimagerð möndlumjólk með kanil og vanillu

Magn1 skammtur

Hver er besta jurtamjólkin? Tegundirnar eru orðnar margar sem hægt er að kaupa útí búð sem er frábært og margar hverjar mjög góðar. Að mínu mati er þó engin sem toppar heimagerða möndlumjólk og ef þú hefur gert hana einu sinni er mjög líklegt að þú gerir hana aftur… og aftur! Það besta við heimagerða möndlumjólk er að þú veist nákvæmlega hvað er í henni og þú getur bragðbætt hana eins og þú vilt. Hér er ein með kanil, vanillu og döðlu til að sæta. Hún er æðisleg ein og sér, útá grautinn, í smoothieinn eða til að nota á over nigh oats.

 2 dl lífrænar möndlur frá Rapunzel
 10 dl vatn
 2,50 stk ferskar döðlur, fer eftir hversu sæta þú vilt hafa hana 2-3 stk
 1 tsk kanil
 ½ tsk lífrænt vanilluduft frá Rapunzel
 hnífsoddur salt
1

Byrjið á að leggja möndlur í bleyti yfir nótt (eða 12 klst).

2

Hellið vatninu af og skolið þær og afhýðið möndlurnar með því að klemma möndluna milli fingranna og hýðið ætti að losna nokkuð auðveldlega.

3

Setjið 2 dl af blautlögðum, afhýddum möndlum í blandara ásamt steinhreinsuðum ferskum döðlum, vanillu og kanil og blandið vel.

4

Takið fram skál sem rúmar alla mjólkina og komið sigtipoka* fyrir yfir skálinni. Hellið mjólkinni í gegnum sigtipokann og notið hreinar hendur til að kreista allan vökvann úr pokanum í skálina.

5

Geymið mjólkina í loftþéttu íláti og geymið í ísskáp. Ég held að mjólkin haldist ferskt í 3-4 daga en ég hef aldrei náð að eiga hana það lengi ;)

*Í sigtipokanum verður eftir möndluhrat sem hægt er að nota í hrákex, bastur, hollar nammikúlur eða grunn í dressingar. Um að gera að leika sér með það.

Verði ykkur að góðu.