…. samfélagsmiðlarnir víbruðu yfir hinu víðsfræga gúrkusalati. Ég ætlaði svo sannarlega ekki að vera ein af þeim sem hoppar á trendið eeeeeen hér erum við haha. Eftir að hafa sjálf tekið þátt í að klára gúrkurnar í búðunum og gert gúrkusalat oftar en tvisvar þá datt mér í hug að deila með ykkur útgáfunni sem ég hef verið að vinna með. Það er nefninlega svo ferlega fljótlegt og það þarf ekki einu sinni að skola rifjárn eftir á því sósunni er bara sullað saman á 10 sek! Að vinna í samstarfi við fyrirtæki gengur oft útá að kynna vörur og þegar ég stóð mig að því að grípa alltaf í Organic Liquid vörurnar til að fá fram rétta bragðið þá datt mér í hug að það væri auðvitað brilliant leið að deila með ykkur uppskrift sem sýnir ykkur hvernig ég hef notað þær undanfarið.
Uppskrift
Hráefni
Leiðbeiningar
Skerið gúrkuna eins og þý kýst, hér hef ég lamið í hana til að mýkja og svo skorið hana í bita.
Hellið sósunum útá og sesamfræum útá og hrærið. Ef þið veljið að blanda hnetusmjöri eða tahini við þá mæli ég með að blanda sósuna fyrst í sér skál og hella síðan yfir gúrkubitana.
Salatið má borða eitt og sér en passar líka mjög vel sem viðbót við núðlurétt eða meðlæti með steiktu tófú og hrísgrjónum eða öðru með asísku ívafi.
Verði ykkur að góðu.