Print Options:








Gulrótarkaka með rjómaostakremi og heimagerðri saltkaramellu

Magn1 skammtur

Gulrótakaka, rjómaostakrem og heimagerð saltkaramella. Þarf að segja eitthvað meira?

Köku botn
 200 g gulrætur
 1 epli
 3 egg
 1 1/2 dl púðursykur
 1 1/2 dl sykur
 3 dl hveiti
 2 tsk lyftiduft
 1 tsk vanillusykur
 2 tsk kanill
 1/2 tsk kardimommukrydd
 1/2 tsk engiferkrydd
 1/4 tsk salt
 1 1/2 dl ólífuolía frá Filippo Berio
 50 g pekanhnetur
Rjómaostakrem
 200 g smjör
 300 g flórsykur
 1 tsk vanilluduft
 150 g Philadelphia rjómaostur
 1/2 - 1 tsk sítrónusafi
Saltkaramellusósa
 2 dl rjómi
 2 dl flórsykur
 3/4 dl síróp
 40 g smjör
 1 tsk salt
1

Þeytið egg, púðursykur og sykur saman þar til blandan er orðin létt og ljós.

2

Rífið gulrætur og epli gróflega niður og saxið hneturnar. Setjið saman við deigið ásamt olíu og hrærið vel saman.

3

Setjið smjörpappír í tvö 24cm form og skiptið deiginu á milli. Bakið í 185°c heitum ofni í 20-25 mínútur. Takið úr ofni og kælið lítillega.

4

Gerið nú kremið og byrjið á að hræra smjör, flórsykur og vanilluduft vel saman. Bætið rjómaosti saman við og hrærið áfram. Smakkið til með sítrónusafa.

5

Smyrjið botnana með kreminu og leggið saman. Setjið kökuna í kæli í að minnsta kosti klukkustund.

6

Gerið saltkaramelluna og hitið rjóma, flórsykur og síróp í potti og hrærið stöðugt. Látið sjóða í 2-3 mínútur. Skerið smjörið í litla teninga og bætið saman við. Smakkið til með salti. Kælið og berið fram með gulrótarkökunni.