Print Options:








Grilluð kjúklingabringa með BBQ sósu, hvítlauksosti og pepperoni

Magn1 skammtur

Grilluð kjúklingabringa með BBQ sósu, fyllt með hvítlauksosti og toppuð með pepperoni

Kjúklingabringur
 4 Rose Poultry kjúklingabringur
 1 dl Hunt´s Sweet BBQ sósa
 1 dl Caj P Grillolía Orginal
 ½ dl Filippo Berio ólífuolía
 Hálfur hvítlauksostur
 12 pepperoni sneiðar eða sirka 3 á bringu
Meðlæti: Grillaður ananas
 1dl Hunt´s Sweet BBQ sósa
 1 msk púðursykur
 1 ½ tsk sjávarsalt
Kjúklingabringur
1

Hrærið saman BBQ sósu, grillolíu og ólífuolíunni þar til marineringin hefur blandast vel saman.

2

Hellið yfir kjúklingabringurnar og látið marinerast í a.m.k. 30 mín eða yfir nótt.

3

Skerið niður osti í langar sneiðar og skerið svo rauf í bringunar og troðið ostinum ofan í.

4

Grillið á heitu grilli í 5 mínútur, lækkið undir eða setjið á efri grind í 5-10 mínútur og raðið pepperoni sneiðum á grillið og leggjið svo ofan á bringurnar þegar það er oðrð stökkt (ath. það er mjög fljótt að grillast)

Meðlæti: Grillaður ananas
5

Takið utan af ferskum ananas og skerið hann í sneiðar, pennslið með BBQ sósu eða veltið honum uppúr í skál og stráið smá púðursykri yfir (má sleppa).

6

Grillið ananasinn í sirka 4 mín á hvorri hlið eða þar til hann er orðin mjúkur og farin að brúnast.

7

Stráið sjávarsalti yfir áður en hann er borin fram.

Nutrition Facts

Serving Size 4