Eðlan sem allir elska nú á grillinu!
Hitið grillið en hafið slökkt á miðju brennaranum á grillinu.
Búið til bakka úr álpappír og penslið hann með ólífuolíu.
Leggið tortillakökurnar á bakkann, smyrjið rjómaostinum á botninn og setjið síðan salsasósu, TABASCO® eftir smekk, beikonkurl og rifinn ost yfir.
Grillið í 15 mínútur eða þar til osturinn er alveg bráðnaður.
0 fyrir hvað marga, hvað mörg stykki