Print Options:








Grillaður Halloumi ostur

Magn1 skammtur

 1 stk Halloumi ostur (ca 200g)
 msk Filippio Berio ólífuolía
 2 msk hunang
 safi úr ½ sítrónu
 salt og pipar
 1 msk ristuð graskersfræ
 1 msk ristaðar salthnetur
1

Skerið ostinn í svipað stóra teninga og raðið á spjót.

2

Blandið ólífuolíu, hunangi, sítrónusafa, salti og pipar saman í skál og hrærið vel saman.

3

Penslið dressingunni á ostinn.

4

Grillið ostaspjótin í 45-60 sek. á hvorri hlið og penslið með meiri dressingu.

5

Setjið fræin og hneturnar saman í mortél og myljið í grófan mulning.

6

Berið fram með hnetu- og fræmylsnunni og borðið á meðan osturinn er heitur.