Print Options:








Grillaðar tandoori risarækjur með kaldri kóríander dressingu

Magn1 skammtur

Þessi réttur er alveg einstaklega einfaldur og örfá innihaldsefni sem þarf. Einungis þarf að gera ráð fyrir tíma fyrir marineringuna en þess utan tekur rétturinn bara örfáar mínútur að verða tilbúinn. Það er snjallt að bjóða upp á þessar rækjur sem forrétt og það er sérlega auðvelt að margfalda uppskriftina og bjóða upp á fyrir stærri hóp. Tandoori marineringin frá Patak‘s leikur hér stórt hlutverk enda dásamleg þegar við þurfum aðeins að stytta okkur leið í indverskri eldamennsku.

Rækjurnar
 1 stk poki risarækjur hráar, um 450g
 1 dl grísk jógúrt
 1 dl Tandoori Spice Marinade frá Patak‘s
 Nokkur bambus grillspjót
Dressingin
 1 dl grísk jógúrt
 5,50 stk greinar af ferskum kóríander, notum bara laufin
 1 msk ferskur lime safi
 Salt og pipar eftir smekk
1

Setjið frosnar rækjurnar í sigti og affrystið undir volgri vatnsbunu. Kreistið vatnið úr.

2

Setjið jógúrt og Tandoori mauk í miðlungsstóra skál og hrærið saman. Setjið rækjurnar út í og veltið upp úr marineringunni. Setjið plastfilmu yfir skálina og setjið hana í kæli. Marinerið í að minnsta kosti 1 klst en allt upp í 1 sólarhring.

3

Setjið öll innihaldsefni í dressinguna í lítinn blandara eða nutri bullet og mixið vel saman. Kælið.

4

Það er best að leggja bambus grillspjótin í bleyti í svona 15 mín áður en rækjurnar eru þræddar upp á þau. Ég set 6-7 rækjur á hvert.

5

Hitið grillið vel upp og grillið spjótin í nokkrar mínútur, þau taka enga stund á grillinu, fylgist bara vel með.

6

Berið grillaðar rækjurnar fram með dressingunni.