Grillaðar risarækjur í klístraðri hvítlauks hunangs sósu sem þú átt eftir að elska!

Uppskrift
Hráefni
U.þ.b. 400 g Tígrisrækja stór
¼ Ferskur ananas
50 g smjör
1 dl hunang
2 msk soja sósa
2-3 hvítlauksgeirar
Salt og pipar
Kóríander (má sleppa)
Grillpinnar
Leiðbeiningar
1
Best er að láta grillpinnana liggja í bleyti í ca 20 mín áður en matnum er raðað á pinnana.
2
Setjið smjör, hunang og soja sósu ofan í lítinn pott og sjóðið saman, rífið hvítlauksgeirana út í og kryddið með salti og pipar, sjóðið þar til sósan hefur þykknað og líkist sírópi.
3
Skerið ferskan ananas í bita, takið börkinn af. Raðið risa rækjum og ananas á pinnana til skiptis, penslið svolítið af sósunni yfir pinnana.
4
Grillið pinnana á báðum hliðum í 3-5 mín á hvorri hlið eða þar til rækjurnar eru eldaðar í gegn, penslið meira af sósunni yfir pinnana á meðan verið er að grilla.
Uppskrift frá Lindu Ben.
MatreiðslaFiskréttir, Grillréttir, SjávarréttirTegundÍslenskt
Hráefni
U.þ.b. 400 g Tígrisrækja stór
¼ Ferskur ananas
50 g smjör
1 dl hunang
2 msk soja sósa
2-3 hvítlauksgeirar
Salt og pipar
Kóríander (má sleppa)
Grillpinnar