Print Options:








Gómsæt og krönsi vefja

Magn1 skammtur

Innblásturinn að uppskriftinni er Crunchwrap sem fæst á Taco bell. Crunchwrap er stór tortilla sem er fyllt með allskonar góðgæti. Henni er svo pakkað saman í böku og steikt á pönnu.

 600 g úrbeinuð kjúklingalæri
 3 tsk chipotle mauk eða krydd
 1 msk ólífuolía
 ½ tsk laukduft
 ½ tsk hvítlauksduft
 1 tsk salt
 ¼ tsk pipar
 Tortillur original frá Mission
 Street tacos frá Mission
 Tortilla chips frá Mission
 Philadelphia rjómaostur
 Rifinn cheddar ostur
 Pinto baunir
 Spínat
 Tómatar, smátt skornir
 Jalapeno úr krukku, smátt skorinn
Sósa
 1 dós sýrður rjómi
 Safi úr ½ lime
 ½ tsk hvítlauksduft
 ½ tsk laukduft
 1-2 msk ferskt kóríander, smátt skorinn
 ½ tsk salt
 ¼ tsk pipar
Guacamole
 2 avókadó
 2 tómatar
 2 msk rauðlaukur
 Safi úr ½ lime
 Chili flögur
 Salt & pipar
1

Blandið kjúklingalærunum saman við chipotle kryddið, ólífuolíu, laukduft, hvítlauksduft, salt og pipar í skál.

2

Setjið kjúklinginn í eldfast mót og bakið í 30-40 mínútur við 190°C á blæstri eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður.

3

Rífið kjúklinginn smátt með tveimur göfflum. Blandið rifna kjúklingnum vel saman við vökvann og kryddblönduna.

4

Dreifið ólífuolíu yfir street tacos og bakið við 190°C þar til þær verða stökkar. Fylgist vel með þeim þannig að þær brenna ekki.

5

Blandið saman í sósuna með skeið og guacamole í töfrasprota eða stappið öllu saman.

Samsetning
6

Byrjið á því að fylla hverja og eina tortillu. Smyrjið rjómaosti og dreifið 1-2 msk af rifnum cheddar osti í miðjuna. Dreifið 1 dl kjúklingi og smátt skornum jalapeno eftir smekk.

7

Leggið eina stökka street taco tortillu ofan á og smyrjið 1 msk af sósunni yfir.

8

Því næst dreifið þið ½ dl af pinto baunum, 1-2 msk smátt skornum tómati og spínati eftir smekk.

9

Myljið tortilla chips yfir og dreifið 1-2 msk rifnum cheddar osti.

10

Í lokin leggið þið mjúka Street taco tortillu ofan á og lokið stórtu tortillunni með því að brjóta hana saman.

11

Steikið vefjurnar á vægum hita upp úr ólífuolíu þar til þær verða stökkar.

12

Berið fram með guacamole og sósunni eða því sem hugurinn girnist. Njótið.

Auka punktar
13

Mæli með einni vefju á mann (inniheldur eina stóra tortillu og tvær street taco. Magn fyllingar fyrir hverja tortillu stendur í aðferð)