Frábært kartöflusalat hentar fullkomlega yfir sumartímann.
Afhýðið kartöflurnar og skerið niður í bita og sjóðið í potti þar til þær eru farnar að mýkjast en ekki mauksoðnar. Takið vatnið frá og skolið kartöflurnar með köldu vatni.
Setjið kartöflurnar í skál ásamt ólívum, kirsuberjatómötum og fetaosti. Saltið.
Gerið dressinguna með því að hræra saman sítrónusafa, oregano,salti og pipar. Hrærið saman og hellið ólífuolíunni smátt og smátt saman við og hrærið allan tíman þar til dressingin hefur blandast vel saman. Hellið dressingunni yfir salatið, magn eftir smekk.
0 fyrir hvað marga, hvað mörg stykki