Print Options:








Fylltir bananar á grillið

Magn1 skammtur

Stökkir sykurpúðar og Oreokex í bland við volgan banana, bráðið súkkulaði og ber…..namm!

 4 bananar (meðalstórir) frá Cobana
 100 g Milka Daim súkkulaði
 Litlir sykurpúðar
 Oreo Crumbs með kremi
 Driscolls jarðaber
 Driscolls bláber
 Driscolls hindber
1

Skerið endana af banönunum og því næst vasa í þá miðja eftir endilöngu. Fjarlægið síðan þann hluta af banananum (þetta um 1/5 af honum) og fyllið með Milka súkkulaði og sykurpúðum (ég kom 5 Milka bitum í hvern banana og nokkrum sykurpúðum).

2

Útbúið nokkurs konar hreiður úr álpappír og komið banananum fyrir ofan á því (sjá mynd).

3

Grillið á meðalheitu grilli í nokkrar mínútur eða þar til sykurpúðarnir fá á sig dökkan hjúp og súkkulaðið er bráðið.

4

Stráið Oreo crumbs yfir hvern banana ásamt berjum.