Print Options:








Fylltar konfektdöðlur með möndlu- & kókossmjöri

Magn1 skammtur

Það er svo ósköp gott að eiga eina auðvelda uppskrift í handraðanum að aðeins hollara jólasælgæti. Þetta konfekt er stútfullt af næringu og inniheldur mjög lítinn viðbættan sykur. Vegan & lífrænt konfekt sem er ótrúlega fljótlegt að útbúa og inniheldur fá hráefni.

 1 kassi ferskar döðlur
 1 krukka kókos & möndlusmjör frá Rapunzel
 1 plata 70% súkkulaði frá Rapunzel
 Kókosmjöl frá Rapunzel
1

Byrjið á því að hræra upp kókos og döðlusmjörið og setja það í kæli. Það er best að vinna með það þegar það er stíft.

2

Skerið langsum í döðlurnar og fjarlægið steininn.

3

Setjið tæplega 1 teskeið af kókos og möndlusmjörinu á hverja döðlu og setjið á stóran disk eða bretti.

4

Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði eða í örbylgju og dreifið yfir fylltar döðlurnar

5

Setjið beint í frost eða kæli. Það er best að geyma þetta í lokuðu boxi í frystinum eða kæli þar sem kókos og döðlusmjörið lekur niður þegar það er við stofuhita.