Grilluð fyllt epli með karamellu og hindberjum.
Skerið toppinn af eplunum og hreinsið innan úr til hálfs. Fyllið með hindberjum, Milka súkkulaði og rjómaosti.
Setjið lokin aftur á eplin, pakkið inn í álpappír og grillið þau upprétt við meðalhita í ca. 15-20 mínútur eða þar til eplin verða mjúk.