Print Options:








Fullkomni Toblerone ísinn

Magn8 skammtar

Ég hugsa Toblerone ís sé eitthvað sem verður að vera á boðstólnum yfir hátíðirnar fyrir einhverja aðila. Þetta er algjör klassík og allir elska þennan ís, hvað þá þegar hann er borinn fram með heitri Tobleronesósu! Það er mun einfaldara en margur heldur að útbúa heimagerðan ís og þessi hér er einstaklega ljúffengur og góður.

Toblerone ís
 7 eggjarauður
 100 g sykur
 220 g Toblerone súkkulaðibrætt
 700 ml rjómiþeyttur
 140 g Toblerone súkkulaðifínsaxað
Heit Toblerone íssósa
 220 g Toblerone súkkulaði
 100 ml rjómi
Toblerone ís
1

Þeytið eggjarauður og sykur saman í hrærivél þar til blandan er orðin létt og ljós.

2

Bræðið 220 g af Toblerone súkkulaði yfir vatnsbaði, kælið það lítillega og hellið því síðan saman við eggjablönduna í mjórri bunu. Blandið vel saman.

3

Blandið þeytta rjómanum að lokum varlega saman við með sleikju og loks saxaða Toblerone súkkulaðinu.

4

Plastið að innan hringlaga kökumót með gati í miðjunni (til að auðveldara verði að losa ísinn) og hellið blöndunni þar ofan í og frystið yfir nótt.

5

Hvolfið síðan forminu á þann disk sem bera á ísinn fram á og berið fram með heitri Toblerone íssósu.

Heit Toblerone íssósa
6

Saxið Toblerone gróft niður og setjið í pott ásamt rjómanum.

7

Hitið saman við meðalhita þar til súkkulaðið hefur bráðnað, hrærið reglulega í sósunni á meðan.

8

Leyfið hitanum síðan aðeins að rjúka úr sósunni áður en hún er notuð á ísinn.

9

Gott er að strá söxuðu Toblerone yfir ísinn ásamt heitu sósunni og fallegt að skreyta með blæjuberjum.

Nutrition Facts

Fyrir hvað marga, hvað mörg stykki 8