Print Options:

Fullhlaðið kjúklinga nachos

Magn1 skammtur

Helgaruppskriftin er mætt og hún er virkilega gómsæt. Fullhlaðið nachos með kjúklingi, svörtum baunum, maís, ostasósu og salsasósu. Frábær réttur með köldum bjór.

 350 g KjúklingalæriT.d. Rose Poultry
 2 msk Taco krydd
 1 poki Nachos flögurT.d. Maarud eða Mission
 80 g Maísbaunir
 80 g Svartbaunir
 1 krukka Salsa sósaT.d. El Paradiso
 1 krukka OstasósaT.d. Rosarita
 200 g Rifinn ostur
 1 stk Lárpera
 2 stk RadísurMá sleppa
 1 stk Límóna
 Pikklað jalapeno, eftir smekk
 Kóríander, eftir smekk
 3 msk Sýrður rjómi 10%
1

Forhitið ofn í 180°C með blæstri.

2

Veltið kjúklingalærum upp úr olíu og uppáhalds taco kryddinu ykkar. Raðið á ofnplötu með bökunarpappír og bakið í 30-35 mín. Skerið í bita.

3

Breytið hitanum á ofninum í 180°C yfir og undir hita.

4

Raðið til skiptis nachos, salsasósu, ostasósu, kjúkling, baunum og rifnum osti í rúmgott eldfast mót. Toppið með meiri rifnum osti, kjúkling og jalapeno

5

Bakið í miðjum ofni í um 30 mín eða þar til osturinn er bráðinn og gylltur að lit.

6

Skerið lárperu í bita, sneiðið radísur og saxið kóríander. Kreistið límónusafa eftir smekk saman við sýrðan rjóma og hrærið vel saman.

7

Toppið nachos‘ið með sýrðum límónu rjóma, lárperu, radísum og kóríander eftir smekk.

8

Njótið með ísköldum Corona bjór með límónu.

Nutrition Facts

0 fyrir hvað marga, hvað mörg stykki

Serving size