Print Options:








Ferskir maískólfar með rjómaostablöndu

Magn1 skammtur

Sumarlegt, gott og passar sérlega vel með grillmatnum.

 2 ferskir maískólfar
 1-2 msk smjör
 2 msk Heinz majónes
 2 msk Philadelphia rjómaostur
 Cayenne pipar eftir smekk
 Salt
 Ferskur parmesan ostur eftir smekk
 1 msk ferskur kóríander, smátt saxaður
1

Skerið laufblöðin af maískólfunum með því að skera af efsta hlutann af því (þar sem maískólfinn er minnstur um sig) og flettið laufblöðunum af þeim.

2

Leggið maískólfana í eldfast mót, dreifið smjörinu ofan á þá og bakið í 30 mínútur við 190°C. Ég mæli með að snúa þeim 2 sinnum á meðan þeir eru að bakast.

3

Hrærið saman majónesi, rjómaosti, cayenne pipar, salti og kóríander.

4

Smyrjið blöndunni á maískólfanna þegar þeir eru búnir að bakast og dreifið parmesan osti yfir þá. Gott að toppa með ferskum kóríander.

Nutrition Facts

Serving Size 2