Þessi eplaterta er dásamlega bragðgóð, fögur og heimilisleg í senn. Þetta er kaka sem slær í gegn á veisluborðum en hentar líka einstaklega vel sem helgarkaka með góðu kaffi. Fullkomin kaka fyrir þá sem elska epli og karamellu
Byrjið á því að saxa eplin, setjið í skál ásamt púðursykri og kanil og setjið til hliðar.
Hitið ofninn í 160°C blástur. Smyrjið þrjú 20-22 cm. lausbotna kökuform. Blandið þurrefnum saman í skál og setjið til hliðar.
Setjið olíu og sykur saman í hrærivélaskál og þeytið í 2-3 mín, skafið niður á milli, bætið 1 eggi við og þegar það er samlagað setjið þá næsta egg út í. Endurtakið þar til öll eggin eru komin út í, þeytið á meðalhraða í 2-3 mín eða þar til blandan er orðin létt og ljós.
Sigtið þurrefnin út í og blandið saman við með sleikju. Setjið kanileplin út í deigið og blandið einnig saman við með sleikju. Skiptið deiginu jafnt á milli formanna og bakið í 40-50 mín, tíminn fer eftir ofnum.
Á meðan kökubotnarnir bakast er karamellan útbúin: Setjið sykurinn í pott og bræðið. Þegar hann er orðinn djúp karamellubrúnn (varist að brenna sykurinn þó) er smjörinu hrært snögglega saman við. Þegar smjörið er samlagað sykrinum er rjómanum hellt saman við og pískað hratt þar til karamellan er komin saman. Setjið saltið út í og hellið strax í krukkur.
Kökubotnarnir eru tilbúnir þegar prjóni sem stungið er í miðjuna kemur hreinn upp. Kælið botnana alveg.
Á meðan útbúið þið kremið og kanileplin.
Kanilkremið: Þeytið smjörið í nokkrar mínútur eða þar til það er orðið mjúkt og hvítnað vel. Bætið þá flórsykri, karamellunni og vanilludropum saman við og þeytið í nokkrar mínútur eða þar til það er orðið ljóst og loftmikið.
Setjið botn á kökudisk og smyrjið lagi af kremi ofan á. Leyfið kreminu að ná aðeins hærra við brúnirnar til að mynda pláss fyrir eplin. Dreifið 1/3 af kanileplunum yfir botninn og setjið næsta botn ofan á. Endurtakið og setjið þá síðasta botninn ofan á.
Smyrjið restinni af kreminu ofan á kökuna og setjið restina af kanileplunum ofan á og dreifið karamellu yfir eplin.
Njótið!
0 fyrir hvað marga, hvað mörg stykki