Print Options:








Epla & bláberja crumble með kókos súkkulaði

Magn1 skammtur

Það er virkilega auðvelt að undirbúa bökuna og hægt að gera með góðum fyrirvara.

 6 lífræn epli lítil
 300g frosin lífræn bláber
 50g Cristallino hrásykur
 1 msk gróft spelt
 2 stk Kókos súkkulaði frá Rapunzel
Crumble toppur
 100g gróft spelt
 150 fínir hafrar frá Rapunzel
 1/2 tsk himalaya salt
 110g Cristallino hrásykur
 100g kókosolía frá Rapunzel
 1/2 tsk kanill
 Blandið öllu saman í skál og kremjið saman með fingrunum.
1

Hitið ofn í 180°C

2

Afhýðið og saxið eplin og setjið í meðalstórt eldfast form

3

Setjið frosin bláber þar yfir og blandið saman við eplin. Stráið sykri og spelti yfir.

4

Skerið súkkulaðið í sneiðar og setjið yfir eplablönduna

5

Útbúið crumble toppinn og dreifið yfir. Bakið í 40 - 50 mín. Berið fram með þeyttum jurtarjóma, Oatly vanillusósu eða Oatly vanilluís.