Print Options:








Ensk döðlukaka með dökkri karamellusósu og þeyttum hafrarjóma

Magn10 skammtar

Þessi kaka er af enskum uppruna og yfirleitt kölluð “búðingur” en hún er mjög létt í sér og hefur áberandi karamellukeim. Það tekur enga stund að gera hana og hentar fullkomlega sem eftirréttur, í saumaklúbbinn eða jafnvel á vegan jólahlaðborðið.

 200 g lífrænar döðlur frá Rapunzel
 200 ml vatn
 1 tsk matarsódi
 150 g hveiti
 2 tsk lyftiduft
 0,25 tsk salt
 1 tsk malað engifer
  bolli bragðlaus gul Filippo Berio olía
 0,25 bolli Oatly ikaffe haframjólk
 2 msk dökkt síróp
  bolli púðursykur
Dökk karamellusósa
 60 g smjörlíki eða vegan smjör
 60 g púðursykur
 2 tsk dökkt síróp
 75 ml Oatly visp hafrarjómi
 1 tsk vanilludropar
Þeyttur hafrarjómi
 Restin úr Oatly visp fernunni
 1 tsk vanilludropar
  tsk salt
 1 tsk flórsykur
1

Hitið ofninn í 180°C blástur

2

Setjið döðlur í pott ásamt vatni og látið suðuna koma upp. Sjóðið í 5 mín og slökkvið undir. Maukið döðlurnar með töfrasprota þar til þær eru orðnar vel maukaðar. Setjið matarsódann útí ásamt olíu, sykri, sírópi og vanillu.

3

Setjið hveiti, lyftiduft og salt saman í skál. Hellið döðlublöndunni út í og hrærið varlega saman.

4

Smyrjið eldfast form í minni kantinum og dreifið vel úr deiginu í formið. Bakið í 20-25 mín. Útbúið karamellusósuna á meðan kakan bakast.

5

Takið kökuna úr ofninum og látið hana kólna að mestu. Stingið nokkur göt í hana með tannstöngli og hellið karamellunni yfir. Þegar kakan er orðin alveg köld útbúið þá þeytta hafrarjómann og smyrjið yfir kökuna. Ég skreytti hana með smá pekanhnetum en þess þarf ekki.

Dökk karamellusósa
6

Setjið smjörlíki, púðursykur og síróp saman í pott og bræðið saman þar til púðursykurinn er uppleystur. Setjið hafrarjómann saman við ásamt vanillu og pískið vel saman. Takið af hitanum og geymið.

Þeyttur hafrarjómi
7

Allt stífþeytt saman og sett yfir kalda kökuna.

Nutrition Facts

Fyrir hvað marga, hvað mörg stykki 10