Enchiladas með ostasósu & avókadó

Fljótlegur og ljúffengur enchilada réttur sem slær í gegn hjá börnunum.

Fyrir 3
 6 Mission tortillur með grillrönd
 400-500 g nautahakk (eða vegan hakk)
 1 lítil krukka salsasósa
 Krydd (Cayenne pipar, cumin, laukduft, salt og pipar)
 1 Philadelphia rjómaostur
 4 msk blaðlaukur, smátt skorinn
 2-3 msk sýrður rjómi
 Chili explosion
 2-3 tómatar, smátt skornir
 Rifinn cheddar ostur
 Rifinn gratín ostur eða annar rifinn ostur (má sleppa)
 Ferskur kóríander (má sleppa)
Avókadóstappa
 2 stór avókadó (eða meira eftir smekk)
 Safi úr ½ lime
 Salt og pipar
Ostasósa
 2 msk smjör
 1 msk hveiti
 2 dl nýmjólk
 5 dl rifinn cheddar ostur
 Cayenne pipar
 Smá salt

1

Steikið hakkið á pönnu, kryddið með cayenne pipar, cumin, laukdufti, salti og pipar og hrærið salsasósunni saman við.

2

Smyrjið tortillurnar með rjómaosti. Dreifið blaðlauknum yfir og því næst dreifið nautahakki í miðjuna eftir smekk (mér finnst ekki gott að hafa of mikið).

3

Rúllið upp tortillunum og raðið í eldfast form sem er smurt eða spreyið með Pam olíu.

4

Smyrjið yfir þær sýrðum rjóma og kryddið með chili explosion. Dreifið tómötunum yfir og stráið rifnum osti yfir allt saman.

5

Bakið í 15-17 mínútur við 190°C eða þar til osturinn er orðinn gylltur.

6

Toppið enchiladas með ostasósunni, avókadóstöppunni og ferskur kóríander.

Avókadóstappa
7

Stappið avókadó og keistið safa úr lime yfir. Saltið og piprið.

Ostasósa
8

Bræðið smjörið í pott við vægan hita. Hrærið hveitinu saman við og blandið því næst mjólkinni út í.

9

Hrærið þar til blandan hefur þykknað og bætið cheddar ostinum við. Hrærið þar til osturinn hefur bráðnað og kryddið eftir smekk.