Print Options:








Einföld skyrkaka með Daim kurli

Magn1 skammtur

Skyrkaka með Daim kurli og hindberjum.

 1 pakki hafrakex með súkkulaði
 70 g smjör
 2 pakkar Daim kurl
 500 ml rjómi
 1 stór dós vanilluskyr
 1 askja Driscoll's hindber
1

Myljið kexið smátt.

2

Bræðið smjör og blandið mulda kexinum saman við. Setjið blönduna í bökunarform (26 cm) og geymið í kæli þar til botninn hefur harðnað.

3

Setjið helminginn af Daim kurlinu yfir botninn.

4

Þeytið rjómann og blandið saman við vanilluskyrið. Setjið yfir kexbotninn og yfir það setjið þið afganginn af Daim kurlinu og berin.

5

Setjið plastfilmu yfir og geymið í ísskáp í 6 klst áður en hún er borin fram.