fbpx

Einföld skúffukaka

Góð skúffukaka er algjör klassík! Það má síðan sannarlega skreyta hana eftir tilefni og nú þegar Hrekkjavakan nálgast var gaman að leika sér með beinagrindahlaup og Oreo til að búa til „mold“ yfir kremið.

Magn12 skammtarRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Skúffukaka uppskrift
 250 g hveiti
 130 g Cadbury bökunarkakó
 290 g sykur
 100 g púðursykur
 1,50 tsk lyftiduft
 1,50 tsk matarsódi
 0,75 tsk salt
 290 ml súrmjólk
 220 ml Filippo Berio ljós matarolía
 3 stk egg
 2 tsk vanilludropar
 290 ml sjóðandi vatn
Krem uppskrift
 320 g smjör við stofuhita
 300 g flórsykur
 70 g Cadbury bökunarkakó
 140 g brætt suðusúkkulaði
 2 tsk vanilludropar
 3 msk uppáhellt kaffi
 0,25 tsk salt
Skraut
 8 stk OREO kex
 5 stk BUBS hlaup pokar að eigin vali

Leiðbeiningar

Einföld skúffukaka
1

Hitið ofninn í 180°C.

2

Blandið öllum þurrefnum saman í hrærivélarskálina.

3

Pískið næst saman súrmjólk, matarolíu, egg og vanilludropa í annarri skál og hellið síðan vatninu saman við og pískið áfram.

4

Hellið súrmjólkurblöndunni saman við þurrefnin og hrærið saman á lágum hraða, skafið niður á milli og hrærið þar til vel blandað. Deigið er frekar þunnt og þannig á það að vera.

5

Smyrjið skúffukökuform vel að innan og hellið deiginu í formið.

6

Bakið í um 35-40 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi.

7

Kælið kökuna alveg áður en þið setjið kremið á.

Krem uppskrift
8

Þeytið smjörið þar til létt og ljóst, skafið niður á milli.

9

Bætið flórsykri og bökunarkakó næst saman við í nokkrum skömmtum og þeytið aðeins áfram.

10

Bætið nú öðrum hráefnum saman við, þeytið vel og skafið niður á milli.

11

Smyrjið kreminu jafnt yfir kökuna áður en þið skreytið.

Skraut
12

Dreifið út Oreoduftinu yfir kremið og raðið síðan BUBS um alla köku.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir