Print Options:








Einföld og bragðgóð dýfa

Magn1 skammtur

Hér kemur uppskrift að dásamlegri ídýfu sem er ein sú allra einfaldasta og passar svo vel með Maruud bleika snakkinu með hvítlauk, bjarnarlauk og chili. Tilvalið til að bjóða uppá á gamlárskvöld. Ídýfan inniheldur sýrðan rjóma, krydd og Tabasco Habanero sósu. Gerist ekki einfaldara!

 1 stk dós af sýrðum rjóma
 1 tsk saltflögur
 1 tsk laukduft
 ½ tsk hvítlauksduft
 ¼ tsk pipar
 Tabasco Habanero sósa eftir smekk
 Maarud snakk með hvítlauk, bjarnarlauk og chili
1

Blandið saman sýrðum rjóma, salti, laukdufti, hvítlauksdufti og pipar.

2

Bætið Tabasco Habanero sósu eftir smekk og hrærið saman. Smakkið ykkur til því sósan er mjög sterk.

3

Berið fram með Maruud snakki og njótið.