Print Options:








Einföld grilluð pizza í steypujárns pönnu

Magn1 skammturTími í undirbúning10 minsTími í eldun15 minsTotal Time25 mins

Það er svo einfalt að grilla sér pizzu í steypujárns pönnu.

 Stór steypujárns panna
 Filippo Berio ólífu olía
 Pizzadeig
 Hunt’s pizzasósa
 Rifinn ostur frá Örnu Mjólkurvörum
 Skinka
 Pepperóní
 Sveppir
 Rauð paprika
 Hvítlauks kryddostur frá Örnu mjólkurvörum
1

Kveikið á grillinu og stillið á háan hita.

2

Setjið u.þ.b. 1 msk ólífu olía á pönnuna, fletjið úr pizzadeigið þannig að það er passi ofan í pönnuna, það er gott að hafa það þykkara við endana.

3

Setjið sósuna á deigið og því næst vel af rifnum osti. Skerið áleggið niður og dreifið því yfir. Skerið hvítlauksostinn í bita og raðið yfir. Grillið á grillinu þar til pizzan er bökuð í gegn, osturinn bráðnar og pizzan er byrjuð að brúnast fallega (tími mismunandi eftir grillum og hitanum á grillinu).

4

Setjið hvitlauks eða chilli olíu yfir kantana, takið pizzuna af pönnunni áður en þið skerið hana í sneiðar.

Nutrition Facts

Serving Size 2-4