Print Options:








Einfalt og ómótstæðilegt kínóa sushi

Magn1 skammtur

Létt og næringarríkt.

 1 bolli (190 g) kínóa, soðið í 2 bollum af vatni (480 ml)
 3 msk hrísgrjónaedik, t.d. Rice vinegar frá Blue dragon
  1/2 tsk sykur (eða nokkrir stevíudropar)
 4-5 nori blöð, t.d. frá Blue dragon
 1 sæt kartafla
 1 handfylli spínat
 vorlaukur
 sesamfræ
 wasabi, t.d. frá Blue dragon
 soyasósa, t.d. frá Blue dragon
1

Skerið kartöflurnar í strimla, veltið upp úr olíu og setjið á bökunarplötu. Eldið við 175°c heitan ofn í um 20 mínútur eða þar til þær eru eldaðar í gegn.

2

Hrærið hrísgrjónaediki og sykri (eða stevíu) saman. Sjóðið kínóa og þegar að er fullsoðið bætið þá hrísgrjónaedikinu saman við.

3

Smyrjið einn enda noriblaðs með örþunnri línu af wasabi. Setjið kínóa yfir og raðið svo spínati, sætri kartöflu, vorlauk og sesamfræ og rúllið þessu svo upp og skerið í sneiðar.Hér má að sjálfsögðu nota grænmeti að eigin vali og á tyllidögum er nú huggulegt að byrja á að smyrja þunnri línu af philadelphia rjómaosti yfir noriblaðið, hægt að bera fram með laxi eða elduðum kjúklingi og jafnvel setja smá steikan lauk þegar allt grænmetið er komið (trúið mér þið verið ekki fyrir vonbrigðum). Berið fram með sultuðum engifer og soyasósu.