Print Options:








Einfaldur grískur fiskréttur sem slær öll met!

Magn1 skammtur

 450 g þorskhnakkar
 2 msk ólífuolía frá Filippo Berio til steikningar
 2 msk smjör
 3 msk ólífu olía frá Filippo Berio
 Safi úr 1 sítrónu
 1 dl hveiti
 1 tsk cumin
 1 tsk paprika
 1 tsk túrmerik
 1 tsk kóríander
 ½ pakki forsoðnar parísarkartöflur
 ½-1 rauð paprika
 125 g kirsuberjatómatar
 2 hvítlauksgeirar
 1 krukka feta ostur
 nokkrar ólífur, helst svartar en annars grænar
 Salt og pipar
 Fersk steinselja
1

Kveikið á ofninum og stillið á 200ºC

2

Bræðið smjörið og blandið út í ólífu olíu og sítrónu safa.

3

Setjið hveiti í skál og bætið kryddunum saman við (ekki salt og pipar, það fer seinna), blandið vel saman.

4

Skerið þorskhnakka flakið í hæfilega stóra hluta, mér fannst gott að skipta því í þrjá hluta.

5

Setjið hvern bita í olíu/smjör/sítrónu blönduna þannig hann blotni vel og hjúpið bitann svo í hveitiblöndunni.

6

Hitið 2 msk ólífu olíu á pönnu þangað til pannan er mjög heit en ekki rjúkandi heit. Steikið bitana í um það bil 3 á hvorri hlið (það er óþarfi að elda fiskinn í gegn þar sem hann er fulleldaður í ofni)

7

Á meðan fiskurinn er á pönnunni, raðið þá kartöflum, paprikubitum, kirsuberjatómötum og ólífunum í eldfast mót. Setjið fiskinn svo ofan á grænmetið, reynið að setja hann svolítið ofan í grænmetið.

8

Skerið niður tvö hvítlauksgeira smátt niður og dreifið honum yfir réttinn.

9

Hellið restinni af olíunni/smjör blöndunni yfir og dreifið svo fetaosti yfir allt saman. Kryddið með salti og pipar.

10

Bakið inn í ofni í 15 mín þangað til osturinn verður gullinbrúnn.

11

Raðið ferskri steinselju yfir.