Einfaldi laxinn sem matvandir elska

Grillaður lax með asísku ívafi.

Lax:
 900 g laxaflak
 120 ml soyasósa, t.d. frá Blue dragon
 60 ml hrísgrjónaedik, t.d. Rice vinegar frá Blue dragon
 2 hvítlauksrif, pressuð
 1 tsk rifið engifer, hægt að kaupa í krukku frá Blue dragon
 safi úr 1 sítrónu
Toppað með:
 1/2 búnt vorlaukur, skorinn
 ristuð sesamfræ
Meðlæti:
 Tilda hrísgrjón

1

Setjið öll hráefnin nema laxinn í pott og hitið að suðu.

2

Lækkið hitann og látið malla í um 10 mínútur eða þar til sósan er orðin þykkari.

3

Stillið ofninn á grill og setjið álpappír á bökunarplötu.

4

Setjið laxinn þar á og penslið ríflega með sósunni.

5

Látið laxinn í ofninn, sirka 15 cm frá grillinu og eldið í 10-15 mínútur (eftir þykkt). Það koma dökkir blettir á fiskinn en þar er bara betra.

6

Varist að ofelda laxinn og takið úr ofninum rétt áður en hann er fulleldaður.

7

Penslið með sósunni og stráið ristuðum sesamfræjum og vorlauk yfir.

8

Berið fram með hrísgrjónum.