Print Options:








Eggaldin bruschettur

Magn1 skammtur

Hér erum við með ótrúlega skemmtilegar glútenlausar eggaldin bruschettur sem henta vel fyrir þá sem vilja minnka eða sneiða framhjá brauði.

Eggaldin
 1 stk eggaldin
 ólífuolíu
 organic liquid basil
Bruschettur
 3 stk tómatar
 2 stk hvítlauksgeirar
 2 tsk balsamic edik
 1 tsk kaldpressuð ólífuolía
 lítil handfylli basil og auka til að toppa með
 salt
1

Byrjið á að skola og skera eggaldinið í ca 1 cm sneiðar. Dreifð úr sneiðunum á bretti, gerið göt í hverja sneið með gaffli og stráið ca hnífsoddi af salti á hverja sneið. Leifið eggaldininu að svitna í amk 10 mínútur.

2

Þerrið eggaldinið vel með eldhúsbréfi og komið eggaldinsneiðunum fyrir á bökunarpappír.

3

Dreifið ca 1 tsk af organic liquid basil á hverja sneið og 1 tsk af ólífuolíu. Bakið í 15 mínútur á 200°.

4

Útbúið bruschettamixið með því að skera tómatana og basilikuna smátt, rífa hvítlaukinn og blanda saman við restina af hráefnunum.

5

Þegar eggaldinið er klárt, toppið þá hverja eggaldinsneið með bruschettamixi og auka basiliku.