Print Options:








Dýrðlegt Mexíkó kjúklingalasagna

Magn1 skammtur

Hér er dýrðlegt Mexíkó kjúklingalasagna sem er afar auðvelt að gera og tekur ekki nema 40 mín í allt frá byrjun til enda

 650-700 gr úrbeinuð læri (ég notaði frá Rose Poultry)
 500-520 gr salsasósa (ég notaði frá Mission en þá eru það 2x 260 gr krukkur) fást m.a í Fjarðarkaup og Krónunni
 1/2 dl rjómi
 2 dl maís korn
 2 vefjur (ég notaði frá Mission wraps með spelti og þær voru rosa góðar í þetta, verða ekki blautar, fást m.a í Krónunni og Fjarðarkaup)
 Raspaður börkur af einu Lime
 1 dós sýrður rjómi (ég notaði með graslauk þennan í grænu dollunum)
 1/2 dl ólífuolía
 salt
 Rifinn mozzarella
 Rifinn cheddar
Hvít sósa á milli
 1/2 dl rjómi
 200 gr eða ein askja af Philadelphia rjómaosti Original
 60 gr parmesan
 50 gr rifinn cheddar
 60 gr rifinn mozzarella
 1/2 tsk timian
 1/2 tsk oregano
Kryddblanda
 1/2 tsk cayenne
 1 tsk paprika
 1 tsk cumin (ekki kúmen eins og í kringlum)
 1 tsk timian
 1/2 tsk svartur pipar
 1 tsk hvítlauksduft (ath ekki hvítlaukssalt)
 1 tsk laukduft (onion powder)
 1/2 tsk chili powder
 1 tsk oregano
 1 msk púðursykur
 salt
1

Byrjið á að gera kyddblönduna með því að hræra öllum innihaldsefnum sem fer í hana saman

2

Setjið næst úrbeinaða kjúklingaleggi í matvinnsluvél með hnífinn á og ýtið á pulse og maukið þar til er orðið að litlum bitum en ekki of lengi samt því þá verður kjúllinn seigur

3

Hitið ólífuolíu á pönnu og setjið kúklinginn út á og saltið vel yfir og hellið allri kryddblöndunni yfir líka (ykkur gæti fundist hún of mikið en hún er það ekki)

4

Leyfið að malla þar til kjúklingurinn er orðin hvítur og hellið þá salsasósu, rjóma og limeberki út á. Passið að raspa bara græna lagið af berkinum, ekki ofan í hvíta. Kveikið nú á ofninum á 190 °C blástur eða 200 °C ekki blástur

5

Látið malla í 5-10 mínútur á pönnuni og gerið hvítu sósuna á meðan með því að hræra öllu sem er í henni saman í skál og leggja svo til hliðar

6

Setjið næst maísbaunir út á pönnuna hrærið og slökkvið undir og byrjið að raða í eldfast mót

7

Fyrst er sett kjúklingasalsað, næst vefja, hvít sósa smurð á vefjuna, aftur kjúklingasalsa, vefja, hvít sósa og að lokum annað lag kjúklingasalsa. Sýður rjómi settur efst ofan á og rifnum mozzarella og cheddar stráð yfir allt og gott að setja smá paprikuduft yfir ostinn

8

Bakið í ofninum í 20 mín og berið fram með guacamole sem þið finnið uppskrift af hér og sýrðum rjóma