Snúðar í allskonar útgáfum er líklega bara með því besta bakkelsi sem fyrirfinnst. Og súkkulaði er líka best og það er fátt sem toppar góðan kaffibolla. Hér er þetta allt komið saman í mýkstu og mest djúsí snúðum sem þú getur ímyndað þér. Snúðarnir eru úr fullkomnu „brioche“ deigi, fylltir með dökkri kaffi og súkkulaðifyllingu þar sem ég nota 70% súkkulaði frá Rapunzel. Það súkkulaði er algerlega magnað í bakstur þar sem það er mjög dökkt en ekki biturt eins og margt annað svipað súkkulaði. Það sem gerir þá extra mjúka er rjóminn sem hellt er yfir þá fyrir baksturinn og svo auðvitað toppaðir með kaffi og súkkulaðikremi. Ég get sagt ykkur það að meira að segja þau sem drekka ekki kaffi eru sjúk í þessa!
Setjið þurrefnin saman í hrærivélaskál og blandið aðeins saman með króknum. Velgið mjólkina og setjið saman við þurrefnin ásamt egginu og smjöri. Hnoðið deigið í vélinni í 5-7 mín.
Takið deigið aðeins upp úr skálinni og mótið það í kúlu. Setjið aftur í skálina og hyljið hana með plastfilmu. Hefið í 1 ½ klst.
Á meðan deigið er að hefast er fyllingin gerð. Saxið súkkulaðið og setjið til hliðar. Setjið smjör, rjóma, 60g af hrásykri, kaffiduft og kakó saman í pott og bræðið saman. Þegar allt er orðið samlagað, takið þá pottinn af hellunni og setjið þá saxaða súkkulaðið saman við. Pískið blönduna vel svo hún skilji sig ekki. Látið kólna á meðan snúðarnir klárast að hefast.
Þegar deigið hefur hefast, setjið smávegis hveiti á borð og setjið deigið á borðið. Rúllið út í ca. 30x35cm ferning. Smyrjið fyllingunni yfir deigið en skiljið smá rönd eftir fremst. Stráið þá 2-3 msk. af hrásykri yfir súkkulaðið. Skerið deigið í ræmur með pizzaskera. Hver snúður er ca. 5 cm á breidd.
Takið fram eldfast mót og spreyið með olíuspreyi. Rúllið snúðunum upp í átt að ræmunni sem þið skilduð eftir, festið endann með því að setja smávegis vatn og þrýsta upp að. Raðið snúðunum 6 í fatið og hitið ofninn í 40°C undir og yfirhita.
Úðið vatni yfir snúðana og setjið fatið inn í ofninn. Hefið í ofninum í 30 mín og úðið snúðana 1x-2x á tímanum. Þegar snúðarnir hafa hefast vel eru þeir teknir úr ofninum og hann hitaður í 190°C undir og yfirhita.
Áður en snúðarnir fara í ofninn takið þið þá 70ml af rjóma og hellið yfir miðjuna á snúðunum. Setjið fatið inn í ofninn og bakið snúðana í 20-25 mín eða þar til þeir eru orðnir vel gylltir.
Á meðan snúðarnir bakast er kremið útbúið. Blandið öllum innihaldsefnunum saman í skál fyrir utan súkkulaðið og smyrjið snúðana með kreminu þegar þeir koma úr ofninum.
Stráið smávegis af söxuðu súkkulaði yfir og njótið með ískaldri mjólk eða rjúkandi heitu kaffi.
0 fyrir hvað marga, hvað mörg stykki