fbpx

Dúnmjúk súkkulaðikaka með súkkulaðiganache & kókos

Þessi uppskrift er svo ótrúlega einföld og þægileg að það jaðrar við töfra. Því útkoman er ein sú allra besta. Ég nota hér einungis lífræn hráefni en kakan er svo einnig vegan. Það er mjög líklega ástæðan fyrir því hversu góð hún er. Gæða hráefni og útkoman getur hreint ekki klikkað. Þessi kaka hefur algerlega slegið í gegn í afmælum á mínu heimili. Í fjölskyldunni minni eru börn með ólík ofnæmi, s.s mjólkurofnæmi og eggjaofnæmi. Þessi tikkar í þau box að vera laus við hvorutveggja og hentar því vel þeim sem eru með ofnæmi eða vegan. Leynihráefnið er lífræni matreiðslurjóminn frá Oatly en hann gerir hana alveg einstaklega mjúka og góða. Ég nota hér það allra besta vegan ganache sem til er en það er alveg hægt að gera góðan súkkulaðiglassúr eða vegan smjörkrem.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Súkkulaðikakan
 1,50 bollar lífrænt hveiti
 1 bolli Cristallino hrásykur frá Rapunzel
 0,25 bolli lífrænt kakó frá Rapunzel
 1 tsk matarsódi
 0,50 tsk sjávarsalt
 250 ml Oatly iMat matreiðslurjómi
 3 msk vatn
 1 msk lífrænt eplaedik, ég notaði frá Beutelsbacher
 1 tsk vanillukorn
Súkkulaðiganache - Vegan
 100 g lífrænt dökkt súkkulaði frá Rapunzel
 100 g lífrænt núggat súkkulaði frá Rapunzel
 1,50 dl Oatly iMat matreiðslurjómi

Leiðbeiningar

Súkkulaðikakan
1

Byrjið á því að hita ofninn í 170°C blástur

2

Sigtið öll þurrefnin saman í skál. Takið aðra skál og sigtið þurrefnin aftur, gerið þetta 3x. Það er freistandi að sleppa þessu en mæli með því að gera það ekki þar sem kakan verður loftmeiri og mýkri.

3

Gerið smá holu í þurrefnin og setjið matreiðslurjómann, vatnið og eplaedikið í skálina. Hrærið með sleif þar til deigið er samlagað.

4

Smyrjið 20cm form og klæðið botninn með bökunarpappír sem hefur verið klipptur þannig að hann passi í botninn.

5

Hellið deiginu í formið og bakið í 35 mín. Fylgist þó vel með þar sem ofnar eru misjafnir. Kakan er tilbúin þegar prjónn sem stungið er í kökuna kemur hreinn upp.

6

Kælið kökuna á grind og útbúið kremið á meðan. Smyrjið kreminu á kalda kökuna, það er í góðu lagi að það sé smá ylur í henni ennþá. Stráið kókosmjöli yfir

Súkkulaðiganache - Vegan
7

Saxið súkkulaðið og setjið það í hitaþolna skál. Setjið hafrarjómann í lítinn pott og hitið þar til hann er alveg að fara að sjóða, það myndast litlar loftbólur við jaðrana á pottinum.

8

Hellið rjómanum yfir súkkulaðið, alls ekki hræra á þessu stigi. Setjið bara disk yfir skálina og leyfið þessu að bíða í 2-3 mín.

9

Takið diskinn af og hrærið blöndunni saman þar til hún verður silkimjúk. Leyfið kreminu að kólna vel og stífna áður en það er sett á kökuna því annars lekur það út um allt.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir