Print Options:








Dumplings með hvítlauks hunangssósu og grænmeti

Magn1 skammturTími í undirbúning5 minsTími í eldun20 minsTotal Time25 mins

Alveg geggjaður réttur, steikt grænmeti með hvítlauks hunangssósu, dumplings og grjónum.

Grænmetið
 2 cm þykkur langur bútur af engiferrót
 500 gr sykurbaunir ferskar
 250 gr sveppir
 1 græn paprika
 3 meðalstórar gulrætur
 4 vorlaukar
 1 dl góð olía (ekki nota ólífu frekar bragðlitla matarolíu)
 2 pakkar Itsu kjúklinga dumplings
 smá kreista af sítrónusafa
Sósan
 185 gr Rowse hunang
 4 msk Blue Dragon sojasósa
 2 msk kartöflumjöl
 1 msk Tabasco sriracha sósa
 2 msk Blue Dragon sweet chili sósa
 2 tsk hvítlauksduft (ath ekki hvítlaukssalt) heitir garlic powder á ensku
 1 1/2 dl soðið vatn
ofan á
 Græni parturinn af vorlauknum
 ristuð sesam fræ
 ristaðar kasjú hnetur
 2 pokar af Tilda Basmati grjónum soðin
Grænmetið
1

Skerið papriku niður í mjóar ræmur langsum og gerið það líka við gulræturnar og engiferrótina (ég notaði skrælara til að skera gulrótina langsum í þunnar ræmur)

2

Skerið sveppi í sneiðar og leyfið sykurbaunum að vera heilum. Vorlaukin er fallegt að skera á ská en bara laukpartinn af honum, geymið efsta græna lagið

3

Hitið svo olíuna á pönnu og setjið allt grænmetið saman út á og saltið létt yfir og piprið

4

Leyfið grænmetinu að mýkjast ögn og kreystið smá sítrónusafa yfir, gott að leyfa því að malla og hræra reglulega í í eins og 10 mínútur

5

Gerið svo sósuna á meðan og sjóðið grjónin eftir leiðbeiningum

Sósan
6

Setjið í pott við miðlungshita hunang, sojasósu, Srirachasósu, sweet chili sósu og hvítlauksduft þar til fer að sjóða

7

Setjið þá kartöflumjölið út í og hrærið mjög vel á meðan svo verði ekki kekkjótt

8

Bætið svo heita vatninu strax út í og hrærið vel þar til verður orðið þykkt en hún þarf að sjóða smá

9

Hellið svo sósunni yfir grænmetið og hrærið saman

10

Setjið svo Dumplingsið út á og hrærið vel aftur og leyfið að malla undir loki í c.a 10 mínútur en hrærið reglulega í á milli

11

Ristið fræin og hneturnar og klippið græna partinn af vorlauknum í litla hringi

12

Berið fram með grjónin undir, réttinn ofan á og toppið með vorlauk, sesamfræjum og kasjú hnetum

Nutrition Facts

Serving Size 4-6