Print Options:








Draumaterta með fílakaramellukremi

Magn1 skammtur

Ljúffeng terta með fílakaramellum.

 200 g sykur
 3 egg
 100 g pecanhnetur, saxaðar meðalgróft
 100 g döðlur, saxaðar meðalgróft
 100 g suðusúkkulaði, saxað meðalgróft
 50 g kornflex
 1 tsk lyftiduft
 1/2 líter rjómi
Fílakaramellukrem:
 200 g fílakaramellur
 1 dl rjómi
1

Ofn hitaður í 200 gráður. Egg og sykur þeytt mjög vel saman. Þá er

2

pecanhnetunum, döðlunum, suðusúkkulaðinu ásamt kornflexinu og lyftidufti bætt út í varlega með sleikju.

3

Tvö smelluform (ca. 24 cm) smurð og deiginu skipt á milli þeirra. Bakað við 200 gráður í um það bil 20-30 mínútur. Tíminn getur verið dálítið misjafn eftir ofnum, það þarf að fylgjast með botnunum og meta tímann. Botnarnir eru kældir.

4

1/2 líter rjómi þeyttur og settur á milli botnanna. Ég skildi dálítið eftir að rjóma til að skreyta tertuna með.

5

Fílakaramellur settar í pott ásamt rjómanum og hitað við vægan hita þar til karamellurnar eru bráðnaðar og hafa blandast saman við rjómann. Þá er kremið látið kólna þar til það er hæfilega þykkt – það er að það sé hægt að hella því yfir tertuna án þess að það leki of mikið.

6

Eftir að kremið er sett á kökuna er hún geymd í ísskáp þar til að kremið er orðið kalt og stífnað. Þá er kakan skreytt með afgangnum af þeytta rjómanum. Ég skar niður nokkrar fílakaramellur smátt og dreifði yfir tertuna en ég mæli reyndar ekki með því. Mér fannst karamellurnar of seigar undir tönn til þess að nota þær sem skraut.