Print Options:








Djúsí pönnupizza með heimagerðri pizzasósu og gómsætu áleggi

Magn1 skammtur

PIZZABOTN
 1 kg hveiti (mér finnst gott að blanda saman 60/40 hveiti og heilhveiti)
 12 g þurrger (einn poki)
 650 ml volgt vatn
 ½ dl ólífuolía frá Filippo Berio
 1 msk sykur
 1 tsk salt
PIZZASÓSA
 1 dós niðursoðnir hakkaðir tómatar
 4 hvítlauksgeirar
 2 msk ólífu olía
 1 msk ólífu olía frá Filippo Berio
 1 tsk balsamik vinegar
 ¾ tsk salt
 Svartur pipar eftir smekk
ÁLEGG
 2 stórar mozarella kúlur
 Chorizo (u.þ.b. 16 sneiðar)
 1 elduð kjúklingabringa
 ¼ rauðlaukur
 u.þ.b. 30 stk grænar ólífur með steini
 ½ rauð paprika
 ½ tsk þurrkað oreganó
 Salt og pipar
 Hvítlauksolía (2 hvítlauksgeirar skornir smátt ofan í 1 dl Filippo Berio ólífu olíu)
 Parmesan ostur
1

Byrjið á því að útbúa deigið með því að setja ger og sykur út í volgt vatn. Hrærið því svo saman við hveitið ásamt ólífu olíu, hnoðið deigið í dálitla stund. Deigið á að verða klístrað án þess að það límist við puttana og gefa vel eftir, sé potað í það. Látið það hefast á volgum stað þangað til það hefur um það bil tvöfaldast í stærð.

2

Kveikið á ofninum og stillið á 220ºC.

3

Útbúið sósuna með því að setja öll sósu innihaldsefnin í blandara og blandið vel saman, smakkið til með kryddunum.

4

Skiptið pizzadeiginu í tvo hluta. Smyrjið steipujárns pönnu vel með Filippo Berio ólífu olíu. Setjið annan hlutan af deiginu ofan í pönnuna og fletjið það út með því að þrýsta því vel út í alla kanta, deigið má endilega ná svolítið upp á hliðar pönnunnar.

5

Næst setjiði vel af sósu á pizzuna, skerið mozarella kúlur í sneiðar (líka hægt að rífa hana bara), skerið rauðlaukinn í sneiðar og dreifið helmingnum af honum yfir. Setjið u.þ.b. 8 sneiðar chorizo á pizzuna og rífið helminginn af kjúklingabringunni yfir. Skerið paprikuna smátt niður og setjið helminginn yfir ásamt nokkrum ólífum. Kryddið með oreganó, salti og pipar.

6

Bakið inn í ofni í neðstu stöðu, í um það bil 20 mín eða þangað til botninn er bakaður í gegn og osturinn gullin.

7

Dreifið hvítlauksolíu yfir, eftir smekk og rífið parmesan ost yfir.

8

Endurtakið ferlið fyrir hinn helminginn af pizzadeiginu.