Pasta í dásamlegri ostasósu, ofnbakað með nautahakki. Gerist ekki betra.
Uppskrift
Hráefni
Leiðbeiningar
Byrjið á að skera laukinn smátt og steikið hann við vægan hita. Bætið nautahakkinu út í og steikið.
Blandið tómatpassata, hvítlauk og kjötkrafti saman við nautahakkið. Saltið og piprið eftir smekk.
Sjóðið penne pasta eftir leiðbeiningum á pakkningu.
Skerið steinselju og rífið Parmigiano. Þeytið eggin, steinseljuna og Parmigiano saman í skál.
Sigtið vatnið frá pastanu og setjið aftur í pottinn.
Bætið smjöri og eggjablöndu út í og hrærið. Hrærið kotasælu og rjómaosti út í og setjið pastablönduna í eldfast mót.
Smyrjið nautahakkinu ofan á pastað og stráið mozzarella osti yfir.
Bakið í 15-20 mínútur við 180°C eða þar til osturinn er bráðnaður. Gott að bera fram með fersku salati.