Print Options:








Djúpsteiktar rækjur með grjónum og súrsætri sósu

Magn1 skammtur

Þetta er mun auðveldara að gera en ykkur grunar og tekur ekki nema um hálftíma í allt. Svo er orlýdeigið algjör leynisuppskrift sem notuð er á asískum veitingastöðum.

 350 gr risarækjur frá Sælkerafisk
 2 pokar Tilda masmati grjón
 1,5 líter af grænmetisolíu ég notaði frá Wesson
Orlýdeig
 150 gr hveiti
 75 gr maizena mjöl (ekki sósu þykkirinn heldur sem stendur majsstivelse og er í gulum kassa)
 1/2 tsk fínt borðsalt
 1 tsk lyftiduft
 smá pipar
 1 tsk sykur
 1 msk fiskisósa frá Blue Dragon
 2 dl pilsner
Súrsæt sósa
 1 dl Hunts tómatssósa (ketchup)
 2 dl vatn
 70 gr sykur
 klípa af salti
1

Verið búin að afþýða rækjurnar áður en þið hefjist handa

2

Byrjið á að setja allar rækjurnar á eldhúspappa til að taka allan raka úr þeim og dempið þær líka með eldhúspappír

3

Takið svo halan af með því að toga í endann á honum og halda fast um neðsta part rækjunnar

4

Setjið næst hrísgrjónin í pott og saltið vel og látið sjóða í 12 mínútur

5

Gerið næst orlýdeigið með því að blanda öllum hráefnum saman og hræra mjög vel, setjið svo til hliðar meðan súrsæta sósan er útbúin

6

Setjið allt sem á að fara í súrsætu sósuna saman í pott og látið byrja að sjóða og hrærið vel. Sjóðið í eins og 1 mínútu og leggjið til hliðar

7

Setjið næst olíuna á djúpa pönnu með þykkum botni eða stóran pott með þykkum botni og hitið á hæsta styrk (má líka notast við djúpsteikingarpott auðvitað ef þið eigið)

8

Setjið næst eins og 5-6 rækjur í einu út í deigið og passið að drekkja þeim alveg í deiginu

9

Þegar olían er orðin heit veiðið þá hverja rækju upp úr deiginu með matskeið og hafið vel af deigi með og setjið út í olíuna svona eins og 5-6 í einu

10

Setjið svo steiktar rækjur á disk með eldhúspappa á til að öll aukaolía farið í pappann

11

Berið svo fram með grjónunum, sojasósu og súrsætu sósunni en ekki hella henni yfir rækjurnar áður en þær eru bornar fram. Notið hana bara til að dýfa í