Print Options:








Djúpsteikt OREO

Magn1 skammtur

Rosalega girnilega uppskrift af djúpsteiktu Oreo. Ekki skemmir að uppskriftin er vegan

Pönnukökudeig
 2,5 dl hveiti
 1 msk sykur
 2 tsk lyftiduft
 örlítið salt
 2,5 dl mjólk
 2 msk olía
 1 tsk vanilludropar
 2 tsk eplaedik
 1 pakki Double cream eða venjulegt OREO
 2 pakkar (sirka 1 kg) palmin feiti eða önnur góð steikingarolía
1

Útbúið pönnukökudeigið en þá byrjið þið á að blanda þurrefnunum saman í skál og hræra örlítið saman.

2

Bætið mjólkinni, olíunni, vanilludropunum og eplaediku út í og hrærið.

3

Hitið steikingarolíuna á hæstu stillingu þar til hún hefur bráðnað alveg.

4

Mér finnst gott að prófa hvort olían sé orðin nógu heit með því að setja smá pönnukökudeig út í og sjá hversu fljótt það er að verða steikt og fallega gyllt. Þegar pönnukökudeigið verður fallega gyllt á sirka 1 mínútu er það tilbúið og fínt að lækka hitann um 1 eða 2. Ég t.d. lækka hitann úr 9 í 7,5.

5

Veltið hverju Oreo kexi fyrir sig upp úr pönnukökudeigi og setjið út í olíunni.

6

Steikið í sirka 1 til 1,5 mínútu á hvorri hlið og takið síðan upp og leyfið hverri köku að hvíla í nokkrar mínútur á eldhúsbréfi áður en þær eru bornar fram.

7

Kökurnar eru fullkomnar með Oatly ís eða vegan þeyttum rjóma.