Print Options:








Daim smákökur

Magn1 skammtur

Dásamlegar Daim smákökur.

 150 gr smjör við stofuhita
 75 gr sykur
 75 gr púðursykur
 1 egg
 225 gr hveiti
 1 tsk matarsódi
 ½ tsk salt
 130 gr saxað daim
 50 gr suðusúkkulaði (til að skreyta með)
1

Hitið ofninn í 180°.

2

Þeytið saman báðar tegundir af sykri og smjör þar til létt og ljóst.

3

Bætið því næst egginu út í og hrærið vel.

4

Hveiti, matarsóti og salt fer næst í blönduna og að lokum saxað Daim súkkulaðið.

5

Mótið um 20 kúlur og pressið þær örlítið niður á bökunarplötu klædda bökunarpappír.

6

Bakið í um 15-18 mínútur og kælið.

7

Bræðið þá suðusúkkulaðið og setjið í lítinn zip-lock poka. Klippið lítið gat á eitt hornið og „drizzlið“ yfir kökurnar til skrauts.